Stjórn NLSH tók á móti gestum og kynnti Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs, stöðu byggingaverkefna félagsins og Ingólfur Þórisson, sviðsstjóri tækni og þróunar, kynnti þróunarverkefni og áætlanir tækja og búnaðar nýrra bygginga sem og helstu verkefni á sviði upplýsingatækni.
Að lokum var farið um framkvæmdasvæðið.
Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari Landspítala, var með í för og tók nokkrar myndir.