Í flokknum Vinnustaðurinn okkar hlaut Sigríður Lóa Rúnarsdóttir, aðstoðardeildarstjóri á bráðaöldrunarlækningadeild, heiðrun í ár.
Starfsfólk deildarinnar tekur á móti bráðveikum öldruðum einstaklingum og finnur fyrir þá framtíðarúrræði, hvort sem það er útskrift heim, endurhæfing eða á hjúkrunarheimili. Leggur deildin áherslu á að styrkja og efla einstaklinga sem til þeirra leita svo þeir geti í framhaldi farið á þann stað sem þeim líður best á.
Að sögn Sigríðar ríkir mikill liðsandi á deildinni sem uppfull er af miklu fagfólki og vill hún hvergi annars staðar vera.
Umsögn valnefndar: „Lóa er svo sannarlega límið á deildinni og heldur öllu saman. Hún er glaðlynd, hvetjandi, jákvæð og drífandi. Hún er einstök kona og ómetanlegur starfskraftur. Það ættu allir að eiga eina Lóu.“
Sigríður Lóa Rúnarsdóttir heiðruð from Landspítali on Vimeo.