Jana útskrifaðist með BSc gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 2013 og meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands 2016.
Samhliða námi starfaði Jana á Landspítala og réð sig áfram á HNE- lýta-, bruna- og æðaskurðdeild að því loknu.
Jana hefur undanfarin sjö ár starfað við stjórnunarstörf hjá Icepharma.
„Ég er þakklát fyrir traustið og full tilhlökkunar að takast á við ný og krefjandi verkefni ásamt öflugu starfsfólki deildarinnar. Smitsjúkdómadeild gegnir stóru hlutverki innan spítalans og mikilvægt er að tryggja áfram gæði þeirrar þjónustu sem þar er veitt.“