Vísindasjóður Landspítala hefur úthlutað styrkjum til vísindamanna á Landspítala. Úthlutunin fór fram formlega á Vísindum á vordögum þann 23. apríl en styrkþegum var tilkynnt um fyrirhugaða styrkveitingu með rafrænum hætti nokkru áður. Veittir voru styrkir í 2 styrkjaflokkum, hvatningarstyrkir að hámarki 5 mkr. og verkefnastyrkir að hámarki 2,5 mkr.
Vísindasjóði bárust í heild 74 umsóknir um verkefnastyrki í ár og var samanlögð fjárhæð styrkumsókna tæpar 195 milljónir króna. Úthlutað var 4 hvatningarstyrkjum að heildarupphæð 20 milljónum króna og 60 verkefnastyrkjum að heildarupphæð tæplega 95 mkr. úr sjóðnum að þessu sinni. Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja var um 95 mkr.
Vísindasjóður Landspítala veitir að jafnaði rúmlega 100 milljónir króna á ári í vísindastyrki til starfsmanna spítalans. Tilgangur sjóðsins er að styrkja og efla vísindarannsóknir á spítalanum. Vísindaráð Landspítala ber ábyrgð á og hefur umsjón með faglegu mati á þeim umsóknum sem berast sjóðnum.