Þetta er mikil viðurkenning fyrir Landspítala sem hefur lagt mikla áherslu á samstarf við nýsköpunarfyrirtæki, fjarheilbrigðisþjónustu og Landspítalaappið svo eitthvað sé nefnt á undanförnum árum.
Í umsögn dómnefndar segir:
„Landspítali rekur og þjónustar eitt stærsta og flóknasta tækniumhverfi landsins. Sjúkraskrá spítalans vegur þar þyngst og samanstendur af yfir 100 tölvukerfum. Auk þess hefur Landspítalinn þróað Heilsugátt sem tengir saman öll undirliggjandi kerfi og hefur rækilega sannað sig sem lykil verkfæri heilbrigðisstarfsfólks spítalans. Flestar heilbrigðisstofnanir landsins nýta Heilsugátt sem og fjölmörg sérhæfð kerfi Landspítala. Síðustu ár hefur verið sérstök áhersla fjarheilbrigðisþjónustu og aðkomu sjúklinga að eigin meðferð. Sjúklinga app Landspítala spilar þar veigamikið hlutverk og hefur fengið sérlega góðar viðtökur. Samhliða hefur verið lögð áhersla á nýsköpun og samstarf við nýsköpunarfyrirtæki.“
Í meðfylgjandi myndbandi er rætt við Björn Jónsson, deildarstjóra stafrænnar framþróunar á Landspítala sem fer yfir áskoranir sem felast í að reka og viðhalda jafn stóru kerfi.
Landspítali er UT fyrirtæki ársins from Landspítali on Vimeo.