Vísindaráð Landspítala auglýsir eftir ágripum vísindaverkefna vegna uppskeruhátíðar vísinda á Landspítala, Vísindi á vordögum, sem haldin verður þann 23. apríl næstkomandi. Samþykkt ágrip eru birt á rafrænu formi í fylgiblaði Læknablaðsins.
Einnig er samhliða óskað eftir tilnefningum til viðurkenningarinnar „Ungur vísindamaður Landspítala 2024“.
Skilafrestur er til miðnættis fimmtudaginn 25. mars 2024
Innsend ágrip skulu kynna rannsóknarniðurstöður vísindaverkefna og nýsköpunarverkefna, en ekki gæðaverkefna. Ágrip skulu vera á íslensku, nema í þeim tilfellum þar sem fyrsti höfundur er ekki íslenskumælandi. Vanda skal til málfars; Samþykkt ágrip verða birt í Læknablaðinu eins og þau eru send inn. Vísindaráð áskilur sér rétt til að hafna ágripum sem uppfylla ekki kröfur um vísindalegt innihald eða ekki er vandað til.
Innsend ágrip eru grunnur vals á verðlaunum fyrir framúrskarandi verkefni.
Ágrip eru send inn með rafrænum hætti í rannsóknar- og styrkumsjónarkerfi Landspítala. Leiðbeiningar um gerð ágrips er að finna í rafræna eyðublaðinu og hér: Innsending ágripa með Researchweb.
Tengill til innskráningar: https://www.researchweb.org/is/lh/login
Ungur vísindamaður Landspítala 2024: Ef fyrsti höfundur ágrips vill koma til greina sem Ungur vísindamaður Landspítala 2024 hakar hann við þann valkost og fyllir skilmerkilega út þann hluta rafræna eyðublaðsins sem við á.
Skilyrði fyrir vali er að viðkomandi sé fastráðinn starfsmaður Landspítala, hafi lokið háskólaprófi á síðustu 7 árum og að ferilskrá og ritalisti hans fylgi með ágripi, auk rökstuðnings af hendi viðkomandi af hverju hann ætti að hljóta titilinn „Ungur vísindamaður Landspítala 2024”. Innsent ágrip er einnig hluti af mati því sem fram fer við val á þeim sem hlýtur titilinn.