Styrkir Vísindasjóðs Landspítala til klínískra rannsóknaverkefna ungs og upprennandi vísindafólks á Landspítala verða afhentir við hátíðlega athöfn í Hringsal við Hringbraut, fimmtudaginn 12. desember 2023 milli kl. 12 og 13.
Léttar kaffiveitingar í boði.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá:
Ávarp: Þórarinn Guðjónsson, prófessor og forseti Læknadeildar Háskóla Íslands.
Styrkir til klínískra rannsókna: Marianne Elisabeth Klinke, prófessor og starfandi formaður Vísindaráðs Landspítala.
Afhending styrkja: Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala
Kynning verkefna: Nýir styrkþegar kynna verkefni sín með stuttum fyrirlestrum.
Fundarstjóri: Marianne Elisabeth Klinke