Heilbrigðisþing árið 2023 verður með norrænni skírskotun vegna formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni þetta árið og þingið helgað stafrænni þróun innan heilbrigðiskerfisins með áherslu á gögn og gervigreind. Norðurlöndin stefna í heild sinni á að vera í fararbroddi á því sviði.
Þingið verður haldið í Hörpu þann 14. nóvember og því streymt á http://dataforhealthcare.is/.
Fyrirlesarar verða í fremstu röð, bæði innlendir og erlendir.
Þátttaka er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Leitast verður við að skýra hvernig fjórða iðnbyltingin innan heilbrigðiskerfisins verði að byggja á góðum grunni heilbrigðisgagna, skilvirku regluverki, trausti og þekkingu. Þannig megi efla heilbrigðiskerfi með tilliti til ákvarðanatöku, samvinnu, vísinda og greiningar í þágu almennings.
Velt verður upp spurningum um hvort slík nálgun sé nauðsynleg til að undirbúa heilbrigðiskerfið og samfélagið undir notkun gervigreindar í þágu fólksins í landinu og hvort stafræn þróun sé grunnur að sjálfbærni heilbrigðiskerfa.