Aðalfundur landssamtakanna Spítalinn okkar 2023 verður haldinn þriðjudaginn 25. apríl á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík.
Fundurinn hefst kl. 15:30.
Dagskrá
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga
7. Önnur mál
Að loknum aðalfundarstörfum verður haldið málþing með yfirskriftinni „Uppbygging Landspítala - horft til framtíðar.“