Geðvarpsþáttur í Hlaðvarpi Landspítala - þáttur útgefinn 22. mars 2023
Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun, ræðir við gesti sína sem eru þær Steinunn Ingvarsdóttir og Hrönn Stefánsdóttir.
Helga Sif lauk BSc. í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 1999. Hún lauk meistaranámi í geðhjúkrun við hjúkrunarfræðiskóla Washington University árið 2004 og hlaut doktorsgráðu í hjúkrunarfræði við sama skóla árið 2007. Hún lauk til viðbótar meistaranámi í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2017. Helga Sif hlaut riddarakross árið 2021 fyrir brautryðjandastörf á vettvangi skaðaminnkunar fyrir fíkniefnaneytendur og aðra jaðarsetta hópa. Helga Sif hefur sérfræðingsleyfi í geðhjúkrun með áherslu á fíknisjúkdóma og hefur frá árinu 2009 verið faglegur bakhjarl Frú Ragnheiðar, skaðaminnkunarverkefnis Rauða Kross höfuðborgarsvæðisins, í sjálfboðavinnu.
Steinunn Ingvarsdóttir útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2009. Árin eftir útskrift starfaði Steinunn m.a. á bráðamóttöku, hjartagátt og á krabbameinslækningadeild Landspítala. Steinunn fékk í starfi sínu sem aðstoðardeildarstjóri á Krabbameinslækningadeild mikinn áhuga á gæða- og umbótastarfi og það leidda hana í meistaranám í verkefnastjórnum (MPM) við Háskólann í Reykjavík. Steinunn starfaði sem verkefnastjóri á Landspítala næstu árin eftir útskrift úr meistaranáminu og kom að fjölbreyttum verkefnum. Hún hóf svo störf í geðþjónustu Landspítala haustið 2022 sem hjúkrunarfræðingur í geðhvarfateymi. Steinunn er einnig menntaður Jóga Nidra kennari.
Hrönn Stefánsdóttir er hjúkrunarfræðingur, útskrifaðist frá hjúkrunardeild HÍ árið 2003 en með námi vann hún á bæklunarskurðdeild. Hrönn vann á Hrafnistu og síðar á bráðamóttöku barna þegar nýji barnaspítalinn var opnaður árið 2003. Hún flutti til Bandaríkjanna og fór að vinna á slysa- og bráðadeild í Kaliforníu eftir að hafa tekið bandaríska hjúkrunarprófið. Í Metropolitan University í Minnesota fór Hrönn í diplómanám í sára- og stómahjúkrun og flutti svo heim aftur 2011 og vann á bráðamóttökunmni. Hún var neyðarmóttökuhjúkrunarfræðingur frá 2013 og verkefnastjóri neyðarmóttökunnar árið 2016. Frá 2022 hefur Hrönn unnið á göngudeild geðsviðs.