Sigrún Arndís Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar skurðlækninga á Landspítala Fossvogi.
Sigrún Arndís lauk BSc. námi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og er nú í framhaldsnámi í opinberri stjórnsýslu.
Hún hefur unnið sem hjúkrunarfræðingur á Landspítala og í Svíþjóð frá útskrift og meðal annars sem innköllunarstjóri bæklunarskurðlækninga og unnið á göngudeild skurðlækninga í Fossvogi.
Frá september 2021 hefur Sigrún Arndís verið settur deildarstjóri á göngudeild skurðlækninga B3.