Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kom í heimsókn á Landspítala miðvikudaginn 22. febrúar 2023.
Forsætisráðherra skoðaði nokkrar klínískar- og rannsóknardeildir og fræddist um starfsemina þar af Runólfi Pálssyni forstjóra og öðrum stjórnendum og starfsmönnum. Þetta voru kvennadeildir, rannsóknarkjarni og erfða- og sameindafræðideild og deildir á Kleppi, þar á meðal réttar- og öryggisgeðdeildirnar þar.
Þorkell Þorkelsson ljósmyndari spítalans tók meðfylgjandi myndir í heimsókn Katrínar forsætisráðherra á spítalann.