Það var líf og fjör á Framadögum þar sem Landspítali var að vanda þátttakandi.
Á Framadögum kynna fyrirtæki og stofnanir unga fólkinu framtíðarmöguleika í starfi. Þetta er árlegur viðburður sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík 9. febrúar 2023.
Fulltrúar Landspítala áttu uppbyggilegt spjall við áhugasama háskólanema og þess er vænst að margir þeirra finni starfsvettvang sinn á spítalanum.
- Án efa eru margir háskólanemanna að leita að sumarstarfii eða framtíðarstarfi. Þá gæti komið að gagni að smella hér.