Auglýst er eftir tilnefningum til verðlauna úr Verðlaunasjóði í læknisfræði, stofnuðum af Árna Kristinssyni og Þórði Harðarsyni. Verðlaunin nema 7 milljónum króna.
Verðlaunin veitast vísindamanni sem náð hefur framúrskarandi árangri á sviði læknisfræði eða skyldra greina, þar með talið líffræði, lyfjafræði, hjúkrunarfræði, sálfræði, lýðheilsuvísinda o.s.frv.
Frestur til tilnefninga rennur út 31. janúar 2023 á tölvupóstfangið thordhar@simnet.is.
Tilkynnt verður um verðlaunahafa á Vísindum á vordögum á Landspítala vorið 2023.