Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Eliza Reid forsetafrú komu í heimsókn á Landspítala síðdegis á aðfangadag 2022 og heilsuðu upp á sjúklinga og starfsfólk.
Við Hringbraut heimsóttu forsetahjónin hjartadeild, eldhús og geðdeildir. Í Fossvogi bráðamóttökuna og gjörgæsluna.
Myndina tók Þorkell Þorkelsson við Kringluna á Landspítala Hringbraut í jólalegri hríðarmuggu. Þar tóku á móti þeim Runólfur Pálsson forstjóri, Gunnar Ágúst Beinteinsson framkvæmdastjóri mannauðsmála og Þórunn Oddný Steinsdóttir skrifstofustjóri á skrifstofu forstjóra.