Mælingar á sveppalyfjunum voriconazol, itraconazol, posaconazol og isavuconazol eru nú í boði á rannsóknakjarna í Fossvogi. Mælingarnar eru gerðar á massagreini og mælt er einu sinni í viku.
Nánari upplýsingar er að finna í þjónustuhandbók rannsóknaþjónustu á vef spítalans.
Baldur Bragi Sigurðsson efnafræðingur
Guðmundur Sigþórsson sérfræðilæknir
Ísleifur Ólafsson yfirlæknir