Forstjóri Landspítala bauð til móttöku 7. desember 2022 til heiðurs því starfsfólki sem lét af störfum á spítalanum vegna aldurs árið 2021.
Hefð hefur verið fyrir því að halda slíkt boð að vori ár hvert en vegna Covid-19 hefur það fallið niður síðastliðin tvö ár og var nú loks hægt að taka upp þráðinn að nýju.
Móttakan, sem haldin var í matsal skrifstofu Landspítala við Skaftahlíð, var virkilega hátíðleg stund þar sem bornar voru fram veitingar, fólk spjallaði um liðna tíð og lífið framundan og Guðrún Árný söngkona skemmti að sínum hætti með ljúfum tónum.