Alþjóðlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um þá sem hafa látist í umferðarslysum verður 20. nóvember 2022. Af því tilefni verður komið saman til minningarstundar á þyrlupallinum við bráðamóttökuna á Landspítala Fossvogi. Hún hefst kl. 14:00.
Ávörp flytja Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Jónína Snorradóttir sem segir sögu sína tengda banaslysi sem varð.
Um minningardaginn á vef Samgöngustofu