Kvenna- og barnaþjónusta Landspítala stendur fyrir ráðstefnunni „Fjölskyldan og barnið“ á Hótel Natura Reykjavík föstudaginn 18. nóvember 2022, kl. 08:00 til 16:00. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Leitin að lasleikanum; skimanir í víðu samhengi.“
Ráðstefna þessi hefur verið haldin flest ár síðan 2010. Hún er þverfagleg og ætluð starfsfólki þjónustukjarnans og öðru fagfólki. Þar eru kynntar rannsóknir og verkefni sem tengjast viðfangsefnum og starfsemi kvenna- og barnaþjónustu Landspítala.