Leitin að lasleikanum; skimanir í víðu samhengi er yfirskrift ráðstefnu kvenna- og barnaþjónustu Landspítala Fjölskyldan og barnið 2022 sem haldin verður á Hótel Natura föstudaginn 18. nóvember kl. 8.30-16.00.
Á ráðstefnunni eru kynntar rannsóknir og verkefni sem tengjast viðfangsefnum og starfsemi kvenna- og barnaþjónustunnar. Ráðstefnan er mikilvægur liður í símenntun starfsfólks og ekki síður kjörinn vettvangur fyrir fagfólk að koma saman, deila þekkingu sinni og reynslu og gera sér glaðan dag.