Farsóttanefnd Landspítala ákvað á fundi sínum 10. október 2022:
1. Grímuskylda verður með óbreyttum hætti næstu vikur og jafnvel mánuði. Ástæður eru fyrst og fremst þær að enn er búist við haust/vetrarbylgju Covid ásamt inflúensufaraldri og öðrum öndunarfærasýkingum eins og venja er að vetrarlagi.
2. Hætta má að skima einkennalausa sjúklinga við innlögn. Um leið er ítrekað mikilvægi þess að skima einstaklinga með öndunarfæraeinkenni fyrir öllum veirum - ekki bara Covid.