„Leitin að lasleika: Skimanir í víðu samhengi, gagn og ógagn“ er yfirskrift ráðstefnu kvenna og barnaþjónustu Landspítala, Fjölskyldan og barnið, sem haldin verður 18. nóvember 2022.
Stefnt er að því að vera með veggspjaldasýningu með hefðbundnum hætti samhliða ráðstefnunni. Veggspjöld mega snúa að vísindum og klínískri starfsemi í kvenna- og barnaþjónustu en þurfa ekki að samræmast umfjöllunarefni ráðstefnunnar.
Ráðstefnunefndin óskar eftir stuttri lýsingu eða fyrirspurn vegna veggspjaldasýningarinnar fyrir 10. október - senda á tölvupóstfangið fjolskyldanogbarnid@landspitali.is.