Stjórn Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum fyrir árið 2022.
Sjóðurinn styrkir verkefni sem varða skurðmeðferð brjóstakrabbameins á Landspítala og verða umsóknir að taka mið af því.
Nánari upplýsingar um hlutverk sjóðsins og skipulagsskrá má nálgast á vefsíðunni www.maggaodds.is.
Upphæð styrks sem sótt er um skal rökstudd með fjárhagsáætlun. Stjórn ákveður einstaka styrkupphæðir, sem geta numið allt að 1.000.000.- kr á hverja umsókn. Stjórn sjóðsins metur umsóknir og áskilur sér rétt til að leita eftir frekari upplýsingum en þeim sem koma í umsókn.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi til formanns stjórnar minningarsjóðsins, Hauks Oddssonar, fyrir 25. september 2022, á tölvupóstfang hoddsson@yahoo.com.