Helstu gildandi sóttvarnareglur á Landspítala á óvissustigi frá 5. ágúst 2022
1. Starfsmenn/nemar þurfa nú aðeins að bera skurðstofugrímu í beinum samskiptum við sjúklinga, hvort sem um er að ræða inniliggjandi sjúklinga eða ferlisjúklinga.
2. Inniliggjandi sjúklingar þurfa ekki bera skurðstofugrímu þegar þeir fara út af deild í rannsóknir/meðferð en starfsmenn sem sinna þeim skulu bera grímu.
3. Ferlisjúklingar og heimsóknargestir eiga að bera skurðstofugrímu.
4. Notkun fínagnagríma á bráðamóttökum er valkvæð nema þar sem um er að ræða staðfest COVID smit eða grun um COVID.
5. Ef starfsmaður/nemi er með einkenni öndunarfærasýkinga á viðkomandi ekki að vera í vinnu nema einkenni séu mjög væg og á undanhaldi en þá á starfsmaður að bera
skurðstofugrímu þar til einkenni eru horfin.
6. Heimsóknir til sjúklinga á legudeildum eru takmarkaðar við einn gest í einu (ásamt fylgdarmanni ef nauðsyn krefur) innan skilgreinds heimsóknartíma. Undanþágur eru áfram
veittar við sérstakar aðstæður.
7. Leyfi sjúklinga í endurhæfingarskyni og/eða sem undirbúningur fyrir útskrift eru heimil. Ekki þarf leyfi farsóttanefndar fyrir slíku.
8. Sjúklingar sem koma á göngudeildir, dagdeildir og rannsóknardeildir í viðtöl/rannsókn/meðferð mega hafa með sér fylgdarmann. Báðir þurfa að vera með grímu.
9. Reglur um útsetta sjúklinga er að finna í flæðiriti hér.
10. Fundir starfsmanna eru heimilir án sérstakra varúðarráðstafana.
11. Sjúklingar sem leggjast brátt inn á legudeildir eru skimaðar við innlögn.