Sesselja Lind Magnúsdóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á útskriftardeild aldraðra L2 á Landakoti.
Sesselja Lind lauk BSc prófi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2002. Hún lauk síðan diplómanámi í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu frá Háskóla Íslands 2022.
Sesselja Lind hefur verið hjúkrunarfræðingur á Landspítala frá árinu 2006. Hún hefur m.a. starfað á líknardeild á Landkoti, sinnt starfi útskriftarhjúkrunarfræðings á deild A6 í Fossvogi og gegnt aðstoðardeildastjórastöðu á Vífilsstöðum. Frá 2021 hefur Sesselja Lind verið aðstoðardeildarstjóri á deild L4/L5 á Landakoti.
Vefsvæði útskriftardeildar aldraðra