Árétting frá Birni Hjálmarssyn, yfirlækni á barna- og unglingageðdeild Landspítala, BUGL, vegna umfjöllunar um málefni transbarna:
„Í Stundinni í dag er haft eftir mér að ég hafi efasemdir um vísindalegar forsendur þeirra meðferða sem Landspítali veitir transbörnum og ungmennum. Þetta er rangt og ég biðst velvirðingar á þeim orðum. Sú þjónusta sem transteymi BUGL veitir börnum og ungmennum byggir á alþjóðlegum viðmiðum og gagnreyndum rannsóknum. Teymið er skipað þverfaglegum hópi sérfræðinga sem einsetur sér að veita skjólstæðingum okkar eins góða þjónustu og meðferð og nokkur kostur er á. Reynslan af meðferð transbarna og ungmenna spannar ekki marga áratugi. Þess vegna er mikilvægt að fylgjast grannt með alþjóðlegum rannsóknarniðurstöðum sem og reynslu þeirra sem við viljum bera okkur saman við. Það munum við áfram gera í viðleitni okkar til að þjónusta viðkvæman hóp af þeirri virðingu og fagmennsku sem hann á skilið, í virku samtali við börnin og aðstandendur þeirra.“