Frá forstjóra Landspítala:
Forstjóri hefur veitt Ólafi Baldurssyni framkvæmdastjóra lækninga ársleyfi frá störfum frá 1. júlí 2022.
Ólafur hefur þegið boð Karolinska-háskólasjúkrahússins í Stokkhólmi um að starfa þar í eitt ár sem yfirmaður (verksamhetschef) lungnaþjónustu.
Landspítali óskar Ólafi velfarnaðar í nýju verkefni og býður hann velkominn til starfa á ný næsta sumar, með nýjan lærdóm og reynslu í farteskinu.