Anna Björg Jónsdóttir hefur verið ráðin yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala.
Anna Björg lauk námi frá læknadeild Háskóla Íslands í júlí 2001. Hún er með almennt lækningaleyfi á Íslandi og Danmörku frá árinu 2002 og sérfræðileyfi í öldrunarlækningum á Íslandi og Danmörku var febrúar 2013. Anna Björg hefur einnig lokið diplómanámi í opinberri stjórnsýslu og er að ljúka meistaranámi í opinberri stjórnsýslu. Lokaritgerð hennar fjallar um tengslanet í öldrunarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Anna Björg hefur gegnt stundakennslu og er aðjúnkt við læknadeild Háskóla Íslands. Hún hefur komið að skipulagningu framhaldsnáms lækna í lyf- og öldrunarlækningum á Landspítala og var einn af kennslustjórum sérnáms í lyflækningum á Landspítala frá 2013 til mars 2021 ásamt því að vera fyrsti kennslustjóri sérnáms í öldrunarlækningum. Anna Björg hefur komið að og stýrt fjölmörgum þróunar- og gæðaverkefnum innan öldrunarþjónustu og verið virkur þátttakandi í nýsköpunarverkefnum auk þess að gegna ýmsum félags- og trúnaðarstörfum hérlendis og erlendis.
Anna Björg var yfirlæknir á dag-, göngu- og samfélagsdeild öldrunarlækninga á Landakoti frá desember 2018 til mars 2021. Frá mars 2021 hefur hún verið yfirlæknir öldrunarþjónustu Heilsuverndar þar sem hún hefur m.a. komið að innleiðingu á heilsuvernd eldri borgara í heilsugæslunni.