Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala 20. apríl 2022:
Viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala hafa ákveðið að færa viðbúnaðarstig spítalans vegna COVID-19 af hættustigi á óvissustig þar sem dregið hefur hratt úr faraldrinum. Reglulegir fundir viðbragðsstjórnar og farsóttanefndar hafa verið lagðir af. Kallað verður til slíkra funda aðeins ef talin verður sérstök þörf á.
Í óvissustigi felst að viðbúnaður er vegna yfirvofandi eða orðins atburðar og dagleg starfsemi ræður við atburðinn.
Leit
Loka