Frá Blóðbankanum í dymbilviku 2022:
Blóðbankinn biðlar til þeirra sem geta gefið blóð að bóka sér tíma!
Í þessari viku og næstu eru fáir dagar til heilblóðssöfnunar. Því biðlar Blóðbankinn til allra þeirra góðu blóðgjafa sem eru frískir að koma og gefa blóð.
Blóðbankinn þarf nauðsynlega að viðhalda góðri lagerstöðu til að geta mætt þörfum þeirra sem þurfa á blóðgjöf að halda. Hver blóðgjafi getur bjargað lífi allt að þriggja einstaklinga.
Brettum um ermar og fyllum alla tíma!
Tímabókanir í síma:
- Blóðbankinn við Snorrabraut s. 543 5500
- Blóðbankinn Glerártorgi s. 543 5560
Tölvupóstfang: blood@landspitali.is