Helstu gildandi reglur á Landspítala á neyðarstigi frá 24. mars 2022
Helstu gildandi sóttvarnareglur á Landspítala á neyðarstigi frá 24. mars 2022
- Grímuskylda er hjá öllum starfsmönnum, heimsóknargestum, ferlisjúklingum og sjúklingum legudeilda sem fara út af deild í rannsóknir/meðferð. Á öllum bráðamóttökum eru notaðar fínagnagrímur án ventils við umönnun sjúklinga. Einnig er ráðlagt að nota fínagnagrímur við umönnun nýinnlagðra sjúklinga meðan ekki er búið að svara innlagnasýni (skimsýni f. COVID)
- Nándarmörk eru 1 metri nema ef gríma er tekin niður í neysluhléi, þá 2 metrar.
- Heimsóknir eru takmarkaðar við einn gest á dag til hvers sjúklings innan skilgreinds heimsóknartíma. Undanþágur eru áfram veittar við sérstakar aðstæður.
- Leyfi sjúklinga í endurhæfingarskyni og/eða sem undirbúningur fyrir útskrift eru heimil. Ekki þarf leyfi farsóttanefndar fyrir slíku.
- Sjúklingar sem koma á göngudeildir, dagdeildir og rannsóknardeildir í viðtöl/rannsókn/meðferð mega hafa með sér fylgdarmann ef það er nauðsynlegt.
- Reglur um útsetta sjúklinga er að finna í flæðiriti hér.
- Starfsmaður við vinnu sem fær einkenni þarf að skipta yfir í fínagnagrímu, skila PCR prófi við fyrsta tækifæri en hann má ljúka vinnudeginum.
- Ef starfsmenn með COVID eru einkennalausir/einkennalitlir og treysta sér til vinnu áður en 5 daga einangrun er lokið (greiningardagur með viðurkenndu prófi er dagur 0), þá er það heimilt en þeir þurfa að vera með fínagnagrímu án ventils og ekki vera nálægt samstarfsfólki þegar gríma er tekin niður til að matast.
- Starfsmaður sem er að koma til starfa eftir COVID sýkingu eftir 5 daga smitgát á að nota fínagnagrímu á degi 6 og 7 og fylgja svo reglum um grímuskyldu og grundvallarsmitgát.
- Ef heimilismaður á heimili starfsmanns fer í einkennasýnatöku þá má einkennalaus, fullbólusettur starfsmaður koma til vinnu en hann þarf að nota fínagnagrímu án ventils þar til niðurstaða liggur fyrir.
- Fundir starfsmanna eru nú heimilir. Allir fundarmenn með grímu og gæta að eins metra fjarlægð og tveggja metra ef gríma er tekin niður til að neyta veitinga.
- Sjúklingar sem leggjast brátt inn á legudeildir eru skimaðir við innlögn og sjúklingar sem flytjast á aðrar heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili eru skimaðir fyrir útskrift.
In English