Landspítali er á neyðarstigi
Staðan kl. 9:00
73 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Tveir eru á gjörgæslu, hvorugur þeirra í öndunarvél. 8 börn eru inniliggjandi á aldrinum 4 mánaða til 8 ára.
Í gær bættust 13 í hópinn og 26 fóru úr honum. Það sem einkenndi innlagnir gærdagsins voru tíu aldraðir herramenn sem allir þurftu innlögn vegna mikils slappleika og falls/yfirliða.
Á Vífilsstöðum er hópsýking, þar eru 9 smitaðir. Á Landakoti eru hópsýkingar að verða yfirstaðnar en á bráðaöldrunarlækningadeild greinist að meðaltali einn á dag og eru nú 4 þar inni.
Starfsmenn fjarverandi með Covid eru um 300.
- Ekki eru lengur birtar tölur um fjarþjónustu vegna þess að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og Læknavaktin hafa tekið við þeirri þjónustu.
Landspítali sinnir áfram göngudeildarþjónustu COVID-19 veikra.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.
- Landspítali beinir því til almennings að hringja ekki á deildir spítalans í leit að upplýsingum um viðbrögð vegna COVID-19. Bent er á símanúmerið 513 1700 þar sem er netspjall Heilsuveru með upplýsingum og ráðgjöf um COVID-19. Upplýsingar er einnig að fá á vefjum Landspítala, Embættis landlæknis og á www.covid.is.
- Minnt er á að Landspítali er á neyðarstigi og af þeim sökum eru enn í gildi umfangsmiklar sýkingavarnir á spítalanum, þar á meðal er algjör grímuskylda og heimsóknarbann nema með sérstökum undantekningum.