Heilsugæsla og Læknavakt taka við meginhluta af þjónustu og eftirliti með Covid-19 veikum einstaklingum af Landspítala frá og með 16. febrúar 2022. Þessi yfirfærsla er í samræmi við þróun heimsfaraldurs Covid-19 hér á Íslandi þar sem sífellt færri greinast alvarlega veikir. Á þessum tímapunkti verður starfsemi Covid-19 göngudeildar og fjarþjónustu símavers Landspítala dregin saman.
Mikið veikum einstaklingum og fólki í sérstakri áhættu verður áfram vísað til mats og meðferðar á Landspítala. Fjarþjónusta Landspítala mun áfram meta svör fólks í Heilsuveru og hvort ástæða er til vöktunar símleiðis eða skoðunar í Birkiborg á Landspítala Fossvogi. Spítalinn mun sömuleiðis hafa eftirlit með fólki á farsóttarhótelum eins og þörf krefur. Starfsfólk heilsugæslu og Læknavaktar hefur sem fyrr hnökralausan aðgang að Covid-19 sérfræðingum Landspítala og heilsugæslan greinir áfram smit með PCR-prófi eða hraðprófi.
Heilsuvera verður miðlæg upplýsingalind fyrir smitaða einstaklinga. Þar fær fólk upplýsingar um sýkingu, leiðbeiningar og boð um útfyllingu spurningalista á svokölluðu heilsufarsblaði ef einkenna verður vart. Gert er ráð fyrir að endurnýjun lyfseðla fari að mestu fram í heilsugæslu. Sjúklingar geta haft samband á heilsuvera.is, annað hvort við netspjall á ytri vefnum eða sent erindi á „mínar síður“. Einnig má hafa samband beint við heilsugæslustöð, Læknavakt, sími 1700 eða hringja í 513 6400, Upplýsingamiðstöð Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu.