Helstu gildandi reglur á Landspítala á hættustigi frá 14. febrúar 2022
Helstu gildandi sóttvarnareglur á Landspítala á hættustigi frá 14. febrúar 2022
- Grímuskylda er hjá öllum starfsmönnum, heimsóknargestum, ferlisjúklingum og sjúklingum legudeilda sem fara út af deild í rannsóknir/meðferð. Á öllum bráðamóttökum eru notaðar fínagnagrímur án ventils við umönnun sjúklinga. Einnig er ráðlagt að nota fínagnagrímur við umönnun nýinnlagðra sjúklinga meðan ekki er búið að svara innlagnasýni (skimsýni f. COVID)
- Nándarmörk eru 1 metri nema ef gríma er tekin niður í neysluhléi, þá 2 metrar.
- Heimsóknir eru bannaðar nema með sérstökum undantekningum. Mælst er til þess að gesturinn sé fullbólusettur eða hafi fengið COVID á síðustu 6 mánuðum, ekki í sóttkví og ekki með nein öndunarfæraeinkenni eða hita. Gestur skal nota fínagnagrímu. Undanþágur frá þessu eru gerðar í samráði við stjórnendur viðkomandi deilda. Börn undir 12 ára aldri eiga ekki að koma í heimsókn nema með sérstöku leyfi. Gestir mega ekki borða með sjúklingum þar sem þá þarf að taka niður grímu.
- Leyfi sjúklinga eru ekki heimil nema að fengnu leyfi farsóttanefndar.
- Viðhafa skal hólfaskiptingu á öllum starfseiningum þar sem slíku verður við komið.
- Sjúklingar sem koma á göngudeildir, dagdeildir og rannsóknardeildir í viðtöl/rannsókn/meðferð eiga ekki að hafa með sér fylgdarmann nema það sé algjörlega nauðsynlegt.
- Starfsfólk sem er útsett vegna smits á heimili/dvalarstað eða í samfélaginu má kalla til vinnu í sóttkví B1 ef viðkomandi er fullbólusettur, með neikvætt PCR próf og einkennalaus. Hann skal fylgja reglum um framkvæmd sóttkvíar B í hvívetna. Ef um staka útsetningu er að ræða eða hægt er að halda aðskilnaði á heimili nægir að starfsmaður skili einu neikvæðu sýni í upphafi (má vera í vinnslu) og síðan 5. dags sýni skv. boðun. Ef ekki er hægt er að halda aðskilnaði þá lýkur sóttkví starfsmanns þegar einangrun lýkur á heimlinu með neikvæðu PCR prófi.
COVID-19 - vinnusóttkví B-1
- Ef starfsmaður er kallaður inn í sóttkví B1 af yfirmanni þarf að skrá hann í vefform á þessari slóð: https://quarantine.landspitali.is/is
- Bólusettir starfsmenn og starfsmenn með staðfesta fyrri COVID sýkingu (eldri en 180 daga) sem koma yfir landamæri þurfa að fara í PCR próf á flugvellinum, skrá sig í sóttkví C á vefnum og fara í annað PCR próf eftir 5 daga (panta sjálfir í Heilsuveru). Þeir sem ekki mæta í seinni sýnatöku fá áminningu í sms, ef því er ekki sinnt er haft samband við yfirmann viðkomandi. Ef starfsmaður hefur ekki fengið svar úr sýnatöku þegar hann þarf að mæta til vinnu þá má hann mæta í sóttkví B2 (fínagnagríma og matast afsíðis).
- Þeir sem hafa fengið COVID fyrir meira en 14 dögum og minna en 180 dögum eru undanþegnir sýnatöku á landamærum og sóttkví C innan Landspítala.
- Óbólusettir starfsmenn sem koma yfir landamæri sæta fimm daga heimasóttkví með tveimur sýnatökum.
- Starfsmaður sem er að koma til starfa eftir COVID sýkingu þarf að skrá sig í sóttkví C sem gildir í 7 daga frá endurkomu til vinnu. Það er gert í vefformi hér.
- Ef heimilismaður á heimili starfsmanns fer í einkennasýnatöku og er ekki í sóttkví þá má starfsmaður koma til vinnu en hann þarf að nota fínagnagrímu án ventils þar til niðurstaða liggur fyrir. Ef heimilismaður í sóttkví fer í einkennasýnatöku þá ber starfsmanni að vera heima þar til niðurstaða liggur fyrir. Hann mætti koma í sóttkví B1 ef nauðsynlegt er.
- Fundir starfsmanna þar sem komið er saman eru ekki heimilir að svo stöddu, bent á að nota fjarfundabúnað.
- Um skimanir sjúklinga sem leggjast inn, eru inniliggjandi eða flytjast milli stofnana gilda sérstakar reglur – sjá hér.
- Mikilvægt er að spyrja sjúklinga sem leita til spítalans um einkenni, mögulega útsetningu á heimili eða í samfélaginu og nýlega (innan 5 daga) komu yfir landamæri. Viðkomandi er þá settur í sóttkví í samræmi við svör í 5 daga. Þeir sem eru útsettir eða með einkenni skulu undirgangast sýnatöku og vera í sóttkví.
In English