Landspítali er á hættustigi.
Staðan kl. 9:00
41 sjúklingur liggur á Landspítala með COVID-19. Tveir eru á gjörgæslu, annar þeirra í öndunarvél.
Meðalaldur innlagðra er 63 ár.
7.347 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 2.264 börn.
Covid sýktir starfsmenn Landspítala í einangrun eru 302.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.