Landspítali er á hættustigi.
Staðan kl. 9:00
36 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Tveir eru á gjörgæslu og báðir í öndunarvél.
Meðalaldur innlagðra er 63 ár.
Kona á tíræðisaldri með COVID-19 lést á legudeild í gær.
7.760 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 2.675 börn.
Covid sýktir starfsmenn Landspítala í einangrun eru 250.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.