Ása Óðinsdóttir hefur verið ráðin í starf deildarstjóra á hjartarannsóknarstofu frá 1. febrúar 2022.
Ása lauk BS-námi í lífeindafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007. Hún starfaði sem lífeindafræðingur frá útskrift á Vefjarannsóknarstofunni ehf. og Rannsóknarstofunni Glæsibæ en kom til starfa á hjartarannsóknarstofu Landspítala í maí 2019.