Landspítali er á neyðarstigi.
Staðan kl. 9:00
33 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Þrír eru á gjörgæslu, tveir þeirra í öndunarvél.
Meðalaldur innlagðra er 61 ár.
Kona á níræðisaldri með COVID-19 lést á legudeild í gær.
9.206 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 3.259 börn.
Covid sýktir starfsmenn Landspítala (í einangrun eða innlögn) eru 219.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 378 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.