Vísindaráð Landspítala auglýsir eftir ágripum vísindaverkefna vegna uppskeruhátíðar vísinda á Landspítala, Vísinda á vordögum, sem haldin verður í byrjun maí 2022 . Einnig er samhliða óskað eftir tilnefningum til viðurkenningarinnar „Ungur vísindamaður Landspítala 2022“.
- Frestur til að skila inn ágripum er til miðnættis mánudaginn 14. mars 2022.
Innsend ágrip skulu eingöngu kynna rannsóknarniðurstöður vísindaverkefna en ekki þróunarverkefna eða gæðaverkefna. Ágrip skulu vera á íslensku nema í þeim tilfellum þar sem fyrsti höfundur er ekki íslenskumælandi. Samþykkt ágrip eru birt á rafrænu formi í fylgiblaði Læknablaðsins. Vanda skal til málfars; Ágrip verða birt eins og þau eru send inn. Vísindaráð áskilur sér rétt til að hafna ágripum sem uppfylla ekki kröfur um vísindalegt innihald eða ekki er vandað til.
Innsend ágrip eru grunnur vals á verðlaunum til starfsmanna og nema á Landspítala fyrir framúrskarandi vísindaverkefni.
Ágrip eru send inn með rafrænum hætti í rannsóknar- og styrkumsjónarkerfi Landspítala. Leiðbeiningar um gerð ágrips er að finna í rafræna eyðublaðinu.
Ungur vísindamaður 2022: Ef fyrsti höfundur ágrips vill koma til greina sem „Ungur vísindamaður Landspítala 2022“ hakar hann við þann valkost og fyllir skilmerkilega út þann hluta rafræna eyðublaðsins sem við á.
Skilyrði fyrir vali er að viðkomandi sé starfsmaður Landspítala, hafi lokið háskólaprófi á síðustu 7 árum og að ferilskrá og ritalisti hans fylgi með auk rökstuðnings af hendi viðkomandi af hverju viðkomandi ætti að verða fyrir valinu. Innsend ágrip verða einnig hluti af mati því sem fram fer við val á þeim sem hlýtur titilinn.