Landspítali er á neyðarstigi.
Staðan kl. 9:00
43 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Sex eru á gjörgæslu, fjórir þeirra í öndunarvél.
Karlmaður á tíræðisaldri lést á Landspítala í gær af völdum COVID-19.
Meðalaldur innlagðra er 63 ár.
8.284 sjúklingur er í COVID göngudeild spítalans, þar af 2.588 börn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 323 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.