Frá Nýjum Landspítala ohf.:
Nú er jarðvinna í gangi við nýtt rannsóknarhús sem staðsett er vestan við Læknagarð. Sprengingar eru farnar af stað og verður sprengt þrisvar á dag, kl. 11:00, 14:30 og 17:30 virka daga. Gefið verður hljóðmerki fyrir hverja sprengingu eins og var þegar sprengt var fyrir meðferðarkjarna.
Styrkur sprenginga verður minni en var fyrir meðferðarkjarnann og jafnframt eru þær í meiri fjarlægð þannig að áhrif ættu að vera mun minni á starfsemi spítalans en þegar sprengt var fyrir meðferðarkjarna.