Óskað er eftir ágripum um rannsóknir eða verkefni vegna Bráðadagsins 4. mars 2022. Skilafrestur rennur út 30. janúar.
Bráðadagurinn hefur að þessu sinni yfirskriftina „Bráðaþjónusta fyrir þig alls staðar“ og er æskilegt að ágripin tengist því þema. Þau geti fjallað um meðferðir, samstarf, öryggi og umhverfi bráðveikra og slasaðra.