Landspítali er á neyðarstigi.
Staðan kl. 9:00
21 sjúklingur liggur á Landspítala vegna COVID-19. Meðalaldur inniliggjandi er 62 ár. Sex eru á gjörgæslu, fimm þeirra í öndunarvél.
7.416 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 1.556 börn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hefur verið 261 innlögn vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.