Valur Rafn Valgeirsson og Björn Þór Hallgrímsson, forsvarsmenn Minningarsjóðs Gísla Ísleifs Aðalssteinssonar, komu færandi hendi á barna- og unglingageðdeild Landspítala, BUGL, á aðventu jóla 2021.
Minningarsjóðurinn gaf BUGL kort frá Íslandsbanka að andvirði 400 þúsundum króna auk púsluspila, konfekts og fjölda borðspila. Gjafirnar nýtast á báðum deildum BUGL bæði í afþreyingu og meðferð.
Gefendum voru færðar innilegar þakkir fyrir hugulsamlega gjöf.