Landspítali er á hættustigi
Í dag liggja 12 einstaklingar á Landspítala vegna COVID. Tíu eru með virkt smit og í einangrun. Tveir eru á gjörgæslu og annar þeirra í öndunarvél, eitt barn liggur inni á barnadeild.
Í símaeftirliti eru nú 2.035, þar af 718 börn. Á gulu eru 77 einstaklingar – enginn á rauðu.
- Í gær greindust yfir 300 smit. Umfangið veldur gríðarlegu álagi á margar starfseiningar s.s. COVID göngudeildina, símaverið og rakningarteymi Landspítala. Staðan á spítalanum er mjög erfið vegna mikils aðflæðis sjúklinga, bágrar stöðu legurýma og erfiðleika við að manna deildir. Farsóttanefnd og viðbragðsstjórn hafa þungar áhyggjur af stöðunni og þeim blikum sem eru á lofti hvað faraldurinn varðar.
- Ítrekað er að nú er í gildi heimsóknarbann á Landspítala nema gerðar séu sérstakar undantekningar af stjórnendum viðkomandi deildar.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.