Í dag liggja alls 16 sjúklingar vegna COVID á Landspítala. Átta eru á smitsjúkdóma- og almennri lyflækningadeild A7 með virkt smit, fjórir eru á gjörgæslu - tveir þeirra með virkt smit og tveir sem eru það ekki lengur. Tveir eru á öndunarvél. Alls eru á ýmsum deildum sex sjúklingar sem hafa fengið Covid.
Eitt andlát var í gær og tveir sjúklingar greindust við innlögn.
Í göngudeildinni eru 1.357 í eftirliti, þar af 450 börn. Nýgreiningar í gær virðast vera 146.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.