Niðurstöður úr þjónustukönnun sjúklinga 2021 hafa verið birtar á vef Landspítala.
Sambærilegar þjónustukannanir sjúklinga á Landspítala hafa verið gerðar síðan árið 2012.
Tilgangur slíkrar könnunar er að fá fram viðhorf sjúklinga til þjónustu spítalans og nota til umbótaverkefna þar sem þeirra er þörf.
Boð um þátttöku í könnuninni var sent á úrtak sjúklinga sem legið höfðu inni á Landspítala a.m.k. í sólarhring á tímabilinu febrúar til apríl 2021.
Svarhlutfall í könnunni var 48%.
Spítalinn kann þátttakendum bestu þakkir fyrir þeirra framlag.
Þjónustukönnun Landspítala 2021 – niðurstöður