Kæru sjúkraliðar á Landspítala, til hamingju með daginn!
Í dag, 26. nóvember 2021, er haldinn hátíðlegur Evrópudagur sjúkraliða. Sjúkraliðafélag Íslands er aðili að samtökunum European Council of Practical Nurses.
Deginum er ætlað að vekja athygli á mikilvægum störfum sjúkraliða, hvar sem þeir starfa.
Störf sjúkraliða eru fjölbreytt og mikilvæg og vega þungt í þjónustu við sjúklinga á Landspítala.
Kærar þakkir fyrir ykkar framlag, fagmennsku og umhyggju!
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir