Helstu gildandi sóttvarnareglur á Landspítala í nóvember 2021
Helstu gildandi sóttvarnareglur á Landspítala á hættustigi í nóvember 2021
- Grímuskylda er hjá öllum starfsmönnum, heimsóknargestum, ferlisjúklingum og sjúklingum legudeilda sem fara út af deild í rannsóknir/meðferð.
- Nándarmörk eru 1 metri nema ef gríma er tekin niður í neysluhléi, þá 2 metrar.
- Heimsóknarbann er á spítalanum. Undanþágur eru gerðar í samráði við stjórnendur viðkomandi deilda.
- Sjúklingar sem koma á göngudeildir, dagdeildir og rannsóknardeildir í viðtöl/rannsókn/meðferð eiga ekki að hafa með sér fylgdarmann nema það sé algjörlega nauðsynlegt.
- Staðfundir eru almennt ekki heimilir.
- Bólusettir starfsmenn og starfsmenn með staðfesta fyrri COVID sýkingu sem koma yfir landamæri þurfa að fara í PCR próf á flugvellinum, fá heimild farsóttanefndar fyrir sóttkví C og fara í annað PCR próf eftir 5 daga (panta sjálfir í Heilsuveru). Þeir sem ekki mæta í seinni sýnatöku fá áminningu í sms, ef því er ekki sinnt er haft samband við yfirmann viðkomandi.
- Óbólusettir starfsmenn sem koma yfir landamæri sæta 5 daga heimasóttkví með 2 sýnatökum.
- Ef heimilismaður á heimili bólusetts starfsmanns er í sóttkví getur starfsmaður sótt um heimild til að starfa í sóttkví C á meðan sóttkví á heimili varir (ef ekki er hægt að halda algjörum aðskilnaði).
- Ef heimilismaður á heimili bólusetts starfsmanns er í smitgát þá þarf ekki sérstakar ráðstafanir utan venjulegrar aðgæslu.
- Ef starfsmanni Landspítala er boðið að skrá sig í smitgát vegna minni háttar útsetningar á hann þess í stað að hafa samband við farsóttanefnd sem skipar viðkomandi í sóttkví C með PCR prófum á 4. og 7. degi eftir ætlaða útsetningu.
- Um skimanir sjúklinga sem leggjast inn, eru inniliggjandi eða flytjast milli stofnana gilda sérstakar reglur – sjá hér .
In English