Landspítali er á hættustigi.
Samkvæmt skilgreiningu er hættustig þegar orðinn atburður kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlun. Aukið og breytt álag er á fjölmargar starfseiningar. Þetta getur falið í sér bæði breytta starfsemi og tilflutning á verkefnum og starfsfólki.
Staðan kl. 9:00
16 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19. Þrír eru á gjörgæslu, einn þeirra í öndunarvél.
1.591 sjúklingar, þar af 377 börn, í COVID göngudeild spítalans.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 171 innlögn vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.